Fara í efni
Frí sending um allt Ísland14 daga skilarétturÖrugg greiðslaSvarum innan 1–2 virkra dagaFrí sending um allt Ísland14 daga skilarétturÖrugg greiðslaSvarum innan 1–2 virkra daga

Húðumhirða eftir notkun

· MYNOLA

MYNOLA kristalsháreyðir í hendi

Eftir notkun hefur húðin fengið smá núning og getur verið aðeins næmari en venjulega. Með réttri umhirðu helst hún mjúk og þægileg.

Strax eftir notkun

  • Strjúktu lausu hárin af með mjúku handklæði.
  • Berðu milt, ilmefnalaust krem eða húðmjólk á svæðið.

Bíddu aðeins með

Gott er að bíða til næsta dags með vörur sem geta ert húðina, til dæmis ilmvötn, brúnkukrem og húðvörur með sterkum sýrum.

Ef húðin verður rauð

Smá roði getur komið fram, sérstaklega fyrstu skiptin. Ef húðin verður ert eða óþægileg skaltu taka hlé og leyfa henni að jafna sig. Næst geturðu prófað léttari þrýsting. Ef óþægindin halda áfram skaltu hætta notkun.

Hversu oft?

Það fer eftir þér og hárunum þínum. Notaðu steininn þegar hárin eru farin að sjást aftur – og gefðu húðinni tíma til að jafna sig á milli.

Svona notar þú kristalsháreyðinn →